Fish Spa Iceland
Hverfisgata 98, Reykjavik
Fish Spa Iceland opnaði í júní 2013 og er til húsa að Hverfisgötu 98, á horni Hverfisgötu og Barónsstígs.
Fish Spa Iceland er einstakur staður fyrir þá sem hugsa vel um líkama og sál og vilja láta sér líða vel. Við bjóðum upp á róandi og slakandi umhverfi þar sem allir fara út endurnærðir með bros á vör.
Við bjóðum upp á 20 mínútna meðferð með Garra Rufa fiskunum sem er einstök upplifun. Garra Rufa fiskarnir eru ferskvatnsfiskar og eru mjög vinsælir. Þeir eru elskaðir út um allan heim fyrir að gefa örnudd sem gerir húðina ótrúlega mjúka og slétta, fyrir utan það að meðferðin er afar róandi.
Að fara í Fish Spa er algjörlega öruggt og hentar fólki á öllum aldri. Þetta er einstök upplifun, andleg og líkamleg vellíðan og hentar vel fyrir hópa, vinkonur, steggja- og gæsapartý, öll rómantísk tilefni eða fyrir þá sem vilja koma í dekur.